Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fös 18. mars 2016 13:53
Magnús Már Einarsson
Geir vonast eftir að Lars haldi áfram
Geir Þorsteinsson ræðir málefni Lars í dag. Þjálfarateymið að baki honum.
Geir Þorsteinsson ræðir málefni Lars í dag. Þjálfarateymið að baki honum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, vonast ennþá til að Lars Lagerback haldi áfram að þjálfa íslenska landsliðið með Heimi Hallgrímssyni eftir EM í sumar.

Lars er með samning út EM en hann hefur ekki ennþá ákveðið hvort hann gefi kost á sér til að halda áfram með liðið eða ekki. Lars reiknar með að svara KSÍ í síðasta lagi í byrjun maí.

„Ef við náum þessu draumaliði áfram þá yrði það mjög ánægjuleg niðurstaða fyrir Knattspyrnusambandið," sagði Geir á fréttamannafundi í dag.

„Ég er búinn að ræða við þjálfarana. Við höfum hafið undirbúning okkar fyrir undankeppni HM og erum byrjaðir að fylgjast með mótherjum okkar."

„Ég hef rætt við þá og draumateymi KSÍ til að leiða okkur áfram situr hérna við borðið. Það eru allar dyr opnar eins og er en Lars segir alltaf við mig að hann sé að eldast,"
sagði Geir.

Sjáðu allar landsliðsfréttir dagsins á einum stað:
Hópurinn í heild - Eiður Smári ekki með
16 æfingar og fjórir leikir í stóru stundina
Lars svarar KSÍ í síðasta lagi í maí
Heimir: 10-15 aðrir leikmenn eiga góða möguleika fyrir EM
Geir vonast eftir að Lars haldi áfram
Heimir: Diego getur klárlega orðið framtíðarmaður
Heimir um Aron Sig, Björn Bergmann, Rúrik og Sölva
Lars: Mikil keppni um 4-5 sæti í hópnum
Lars: Mikil keppni um 4-5 sæti í hópnum
Fréttamannafundurinn í heild sinni
Heimir: Tökum vonandi öll framförum á EM
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner