Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 29. október 2018 15:16
Elvar Geir Magnússon
Tár úr leikmönnum Leicester þegar þeir skoðuðu minningarsvæðið
Kasper Schmeichel var mjög náinn eigandanum.
Kasper Schmeichel var mjög náinn eigandanum.
Mynd: Leicester
Mynd: Leicester
Leikmenn Leicester mættu á minningarsvæðið fyrir utan King Power leikvanginn í dag. Þar hafa fjölmargir látið blómvendi og ýmislegt fleira.

Tár láku niður einhverjar kinnar en eigandi félagsins, Vichai Srivaddhanaprabha, var afskaplega vel liðinn hjá öllum innan félagsins.

Vichai lést í þyrsluslysi eftir jafntefli Leicester gegn West Ham á laugardagskvöld.

Sjá einnig:
Sérfræðingur mun aðstoða leikmenn Leicester

Leicester átti að mæta Southampton í deildabikarnum á morgun en þeim leik hefur verið frestað.


Athugasemdir
banner
banner
banner