Neitar ásökunum Ingó - „Ég gerði þetta ekki"
Sagður hafa fengið sjö vítaspyrnur á sig 2014
Erlendur varnarmaður sem lék með Ægi árið 2016 hefur neitað ásökunum um að hann hafi hagrætt úrslitum hjá liðinu í 2. deildinni það sumarið. Ingólfur Þórarinsson ákvað að hætta í fótbolta snemma sumars 2016 eftir að umræddur liðsfélagi hans var sakaður um veðmálasvindl.
Sjá einnig:
Ingó hætti í fótbolta eftir að liðsfélagi hagræddi úrslitum
Sjá einnig:
Ingó hætti í fótbolta eftir að liðsfélagi hagræddi úrslitum
„Fyrir einn leikinn tilkynntu tveir Serbar í liðinu þjálfaranum og stjórninni að einn leikmaður í liðinu hefði boðið þeim peninga fyrir að breyta úrslitum í leiknum og svindla," sagði Ingólfur í Hlaðvarpsþættinum Miðjunni á Fótbolta.net.
„Ég trúi þessu persónulega 100%. Þetta lá eiginlega í augum uppi. Þetta var góður leikmaður en það komu augnablik í leikjum þar sem maður skildi ekki hvað hann var að gera. Maður hélt kannski að hann væri klaufskur en þegar þessar ásakanir komu fram þá lagði maður saman tvo og tvo og þá var þetta frekar augljóst. Að sama skapi finnst mér vont ef það er verið að saka hann um eitthvað sem er rétt. Þess vegna er mikilvægt fyrir alla aðila að þetta sé leitt til lykta. Var hann að þessu eða ekki? Það þurfa að vera yfirheyrslur eða eitthvað kerfi. Maður sé hvað þetta er stórt vandamál í heiminum og það þarf að hafa kerfi á þessu," sagði Ingó einnig.
Fótbolti.net greindi frá málinu árið 2016 en leikmaðurinn sem um ræðir er erlendur varnarmaður sem fékk tvær vítaspyrnur á sig í fyrri hálfleik í leik gegn Gróttu. Eftir þann leik gerði Ægir starfslokasamning við hann. Formaður Ægis vildi ekki tjá sig um málið við Fótbolta.net árið 2016 og Ingó vildi sjá meira gert úr málinu á sínum tíma.
Neitar sök - Segist hafa hætt vegna meiðsla
Í viðtali við DV í dag vísar varnarmaðurinn þessum ásökunum á bug. Samkvæmt heimildum DV úr herbúðum KSÍ áttu sér ekki stað nein óeðlileg veðmál í kringum þennan leik.
„Þetta er ekki satt, ég átti í vanda með einn liðsfélaga minna þarna. Hann var að reyna að komast í liðið á minn kostnað og fór að bera út þessar sögur. Hann spilaði sömu stöðu og ég og var ekki að spila," sagði umræddur leikmaður við DV um málið.
Leikmaðurinn hætti að spila með Ægi þegar málið komst upp árið 2016 og hefur ekki spilað fótbolta eftir það. Hann spilaði með sjö íslenskum félögum á átta árum þar á undan.
„Ég var meiddur á þessum tíma, ég talaði við stjórnina og við ákváðum að láta staðar numið. Það var aldrei neitt sannað, ég gerði þetta ekki. Ég veit ekki hvað ég á að segja. Ég er hættur í fótbolta, málinu er lokið, ég er bara að vinna á Íslandi í dag," segir leikmaðurinn við DV í dag.
Sagður hafa fengið sjö vítaspyrnur á sig með KV
Á Twitter í gær birti Tómas Agnarsson, fyrrum leikmaður KV, áhugaverða færslu en hann segir að umræddur varnarmaður hafi fengið á sig samtals sjö vítaspyrnur þegar hann spilaði með KV í næstefstu deild sumarið 2014.
Kallinn hætti nú sjálfur eftir sjöundu vítaspyrnuna sem þessi meistari fékk á sig árið 2014 en maður er náttúrulega ekki með þessa celeb-vigt. Takk fyrir að opna umræðuna. #Takkhttps://t.co/b3EEgr4qEj
— Tómas Agnarsson (@taggi_18) November 29, 2018



