Myndband: Kepa neitaði að fara af velli - Sarri brjálaður
Það var mjög athyglisvert atvik undir lok framlengingarinnar í úrslitaleik enska deildabikarsins núna áðan. Manchester City vann Chelsea eftir vítaspyrnukeppni.
Chelsea ætlaði að skipta markverðinum Kepa Arrizabalaga út af eftir að hann varð fyrir hnjaski.
Willy Caballero var búinn að gera sig klárann og var á leiðinni inn á, en Spánverjinn Kepa neitaði að fara út af. Eitthvað sem sést ekki oft í fótboltanum.
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, tók brjálæðiskast á hliðarlínunni og ætlaði að strunsa inn í klefa, en hætti svo við það.
Það er spurning hverjir eftirmálarnir verða fyrir Kepa sem varði eina vítaspyrnu í vítakeppninni. Það var ekki nóg fyrir Chelsea.
Með því að smella hér má sjá myndband.
Well I haven’t seen that before...ever!!
— Jody Morris (@morriskid) February 24, 2019
“Ég Kepa áfram” sagði hann.
— Gummi Ben (@GummiBen) February 24, 2019



