City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 26. febrúar 2019 18:53
Elvar Geir Magnússon
Brendan Rodgers nýr stjóri Leicester (Staðfest)
Rodgers er sæll og glaður.
Rodgers er sæll og glaður.
Mynd: Leicester
Brendan Rodgers hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Leicester en hann gerir þriggja og hálfs árs samning.

Hann verður meðal áhorfenda þegar Leicester leikur gegn Brighton & Hove Albion í kvöld og mun svo stýra sínum fyrsta leik um næstu helgi, gegn Watford.

Rodgers, sem er fyrrum stjóri Swansea og Liverpool, hefur undanfarin tvö og hálft ár verið stjóri Celtic en skoska félagið tilkynnti í kvöld að Neil Lennon tæki við starfi hans.

„Það er mikill heiður að vera orðinn stjóri Leicester. Ég mun gera allt sem ég get til að gera stuðningsmenn stolta. Ég hlakka til að vinna með leikmönnum og starfsfólki að því að taka skref fram á við," segir Rodgers.

Mike Stowell sem var í þjálfarateymi Claude Puel, sem rekinn var á dögunum, mun stýra leiknum í kvöld.



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner