Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. febrúar 2019 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Salah: Metið er aukaatriði
Mynd: Getty Images
Mo Salah, leikmaður Liverpool, var í viðtali við LiverpoolEcho fyrir leik liðsins gegn Watford í kvöld. Salah var þar spurður út í markametið sem hann er nálægt því að bæta .

Hann var einnig spurður út í það hvernig það sé að spila sem 'nía' hjá Klopp.

„Það væri gott að skora mark númer 50, 51 og 52! Ég reyni alltaf að skora sem flest mörk og standa mig sem best. Auðvitað væri gaman að ná metinu en það mikilvægasta í þessu öllu saman er að liðið standi sig vel í deildinni," sagði Salah.

„Þetta er mikivæg vika, þrír leikir á átta dögum og það er mikilvægt að halda toppsætinu. Eftir það eru einungis bara níu leikir eftir."

„Ég hef spilað sem fremsti maður oft á leiktíðinni en ég spila líka sem vængmaður og get skorað þar líka. Ég vill ekki að fólk sjái mig sem 'níu' vegna þess að ég er ekki þessi týpa sem heldur boltanum fyrir liðið meðan það færir sig framar."
Athugasemdir
banner
banner