Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 01. apríl 2019 13:07
Elvar Geir Magnússon
Eiginkona Warnock hefði ekki stöðvað hann
Neil Warnock, stjóri Cardiff, froðufelldi af reiði eftir 1-2 tapið gegn Chelsea í gær. Eftir leikinn fór Warnock að dómaratríóinu, stillti sér upp fyrir framan þá og starði á þá með hneykslunarsvip.

Cardiff var yfir í leiknum þegar Chelsea skoraði jöfnunarmark sem aldrei átti að standa, Cesar Azpilicueta sem skoraði var augljóslega rangstæður.

Warnock sagði eftir leikinn að enska deildin væri best en með verstu dómarana.

Warnock sagði við TalkSport í dag að konan sín hefði ekki reynt að hindra hann ef hann hefði látið dómarana finna fyrir því.

„Þegar ég kom heim í gær þá sagði konan mín: 'Elskan, ef þú hefðir viljað láta dómarana finna fyrir því þá hefði ég ekki reynt að stöðva þig. Þetta var svo ósanngjarnt'" sagði Warnock.

„Ég get ekki lýst því hvernig mér líður eftir þennan leik. Þetta gæti verið ákvörðun sem kostar okkur allt. Við hefðum getað sett pressu á liðin fyrir ofan en nú þurfum við áfram að synda á móti straumnum."

Líklegt er að enska sambandið muni refsa Warnock fyrir ummæli hans eftir leikinn í gær.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
12 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
18 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner