Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   fös 04. ágúst 2017 17:19
Brynjar Ingi Erluson
Marko Arnautovic: Það er of kalt hérna
Marko Arnautovic í baráttunni við Danilo
Marko Arnautovic í baráttunni við Danilo
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marko Arnautovic, sem var keyptur til West Ham frá Stoke í sumar fyrir vænlega upphæð, býst ekki við því að koma í frí til Íslands vegna kulda en er þó ánægður með undirbúningstímabilið hjá félaginu.

Lestu um leikinn: Manchester City 3 -  0 West Ham

Arnautovic hefur verið einn af betri mönnum ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ár en hann samdi við West Ham í sumar og var í byrjunarliðinu í dag.

Hann telur þetta hafa verið gott próf að spila gegn Manchester City á Laugardalsvelli.

„Þetta var gott próf. Við vitum að Manchester City er eitt af stærstu liðum Evrópu og við vitum hvað þeir geta og þeir halda bolta og stjórna honum. Það er gott fyrir okkur að reyna að ná okkur í form fyrir fyrsta leik í deildinni gegn Manchester United," sagði Marko Arnautovic.

„Ég var bara að flytja til London. Ég var í Þýskalandi á undirbúningstímabilinu en þetta verður eins og í Manchester, ég mun búa með fjölskyldunni og einbeita mér að fótboltanum sem er mikilvægast."

Hann telur að West Ham eigi góða möguleika á að enda ofarlega í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

„Já, klárlega. Það eru smávægileg meiðsli á hópnum en við eigum góða möguleika í deildinni. Við þurfum að bæta okkur og leggja hart að okkur og einbeita okkur að leiknum gegn United."

Arnautovic var að koma í fyrsta skiptið til Íslands en hann býst þó ekki við því að koma hingað í frí, það sé hreinlega of kalt hérna og er hann meira fyrir að baða sig á sólarströndum.

„Þetta var svolítið skrítið fyrir mig að spila á Íslandi. Ég hef aldrei komið hingað en hef heyrt að það sé frábært að skoða ýmsa staði hér á Íslandi. Fólkið hefur verið mjög indælt við okkur og allir hafa áhuga á fótboltanum hérna og ég er ánægður að koma hingað alla vega einu sinni og sjá lífið með öðrum augum."

„Ég veit það ekki. Ég held að það sé of kalt hérna til þess að fara í frí, frekar fer maður í sólina en með landsliði auðvitað," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner