Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. mars 2023 13:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fékk miklar skammir frá Klopp og fer núna á bannlista
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur sent frá sér yfirlýsingu út af stuðningsmanni sem hljóp inn á völlinn í leiknum gegn Manchester United í gær.

Er leikmenn Liverpool fögnuðu sjöunda markinu í 7-0 sigri, þá hljóp stuðningsmaður inn á og ætlaði að fagna með liðinu. Hann endaði á því að renna og meiddi næstum því Andy Robertson.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, urðaði yfir þennan stuðningsmann er öryggisverðir tóku hann af velli.

Liverpool segir núna í yfirlýsingu að þessi ákveðni stuðningsmaður muni líklega aldrei aftur mæta á Anfield. Hann fer að öllum líkindum á bann lista hjá félaginu.

„Það er engin afsökun fyrir þessari hættulegu hegðun," segir í yfirlýsingunni.

Sjá einnig:
Klopp brjálaðist eftir að áhorfandi hljóp inn á völlinn og meiddi Robertson
Athugasemdir
banner
banner
banner