„Jájá maður er svekktur að tapa fótboltaleikjum.“ Sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 2-3 tap gegn KR í Garðabænum í kvöld. „Þetta var ekki minna svekkjandi núna, fúlt með frammistöðuna í fyrri hálfleik. Vorum undir í öll. Ósáttur við fyrri hálfleikinn en komum beittari inn í seinni hálfleikinn og náðum að jafna.“
Rúnar var eins og sjá má ekki sáttur við leik sinna manna í fyrri hálfleik þar sem KR réðu bara lofum og lögum á vellinum.
Rúnar var eins og sjá má ekki sáttur við leik sinna manna í fyrri hálfleik þar sem KR réðu bara lofum og lögum á vellinum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 3 KR
Aðspurður út í rýra uppskeru eftir fyrstu tvær umferðirnar og hvort hún væri ekki áhyggjuefni fyrir lið sem vildi vera í toppbaráttu hafði Rúnar þetta að segja:
„Jújú, það er ekkert áhyggjuefni. Tveir leikir búnir og sex stig í boði og við erum með eitt stig. Jú, auðvitað er uppskeran rýr í þessum leikjum og við þurfum bara að halda áfram að snúa bökum saman og við þurfum að bæta okkar leik. Við fáum allt of mikið af auðveldum mörkum á okkur og við þurfum að laga varnarleikinn, það er nokkuð ljóst.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir























