Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. mars 2023 12:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grótta tapaði fyrir Blackburn - Landsliðsmaður Síle spilaði í leiknum
Leikmenn eftir leikinn.
Leikmenn eftir leikinn.
Mynd: Grótta
Grótta spilaði um liðna helgi æfingaleik við Blackburn Rovers, sem leikur í ensku B-deildinni. Liðið er í æfingaferð en hún byrjaði á Englandi þar sem liðið æfði á æfingasvæði Manchester City, Etihad Campus.

Á laugardag spilaði Grótta svo við Blackburn á æfingasvæði þeirra. Blackburn spilaði á blöndu af aðalliðsmönnum og unglingaliði sínu, en þar á meðal voru Ben Brereton Diaz, Ryan Hedges og Tyler Morton.

Diaz er landsliðsmaður Síle en hann er sagður á leið til Villarreal eftir tímabil. Hægt er að lesa um sögu hans með því að smella hérna.

Leikurinn fór 3-0 fyrir heimamönnum en Tyler Morton skoraði fyrsta mark leiksins áður en Harry Leonard bætti við tveimur mörkum.

Í lok leik fór fram vítaspyrnukeppni en Blackburn eru að undirbúa sig fyrir FA Cup viðureign gegn Sheffield United. Blackburn fór með sigur af hólmi í vítakeppninni, 5-4.

Þjálfarateymi Gróttu - sem er að mestu leyti breskt - fór einnig í heimsókn á æfingasvæði Liverpool á fimmtudaginn var þar sem þeir fengu að kynnast starfsháttum í gagnagreiningu.

Gróttuliðið er núna farið til Spánar þar sem æfingaferðin heldur áfram.


Athugasemdir
banner
banner
banner