Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. febrúar 2023 13:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Greenwood spilar ekkert á þessu tímabili
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood kemur ekkert til með að spila með Manchester United á þessari leiktíð.

Fyrr í þessum mánuði voru allar ákærur á hendur Greenwood lagðar niður. Greenwood var ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, ofbeldisfulla hegðun og líkamsárás gegn kærustu sinni.

Englendingurinn var handtekinn eftir að kærasta hans birti myndir af áverkum sínum og hljópupptöku þar sem hann neyðir hana til kynmaka.

Greenwood hefur ekki spilað með United síðan en félagið á eftir að taka ákvörðun um framtíð hans. Hann er enn samningsbundinn Man Utd.

Félagið er núna að rannsaka málið en samkvæmt götublaðinu Daily Star þá mun þeirri rannsókn ekki ljúka á næstunni. Greenwood mun því ekkert spila á þessu tímabili en það verður fróðlegt að sjá hver ákvörðun félagsins með hann verður.
Athugasemdir
banner
banner