Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. febrúar 2023 18:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leeds staðfestir að Skubala verði áfram með liðið
Mynd: Getty Images

Leeds United heldur leit sinni áfram að næsta stjóra liðsins en félagið hefur staðfest að Michael Skubala og hans teymi muni halda áfram að stýra liðinu í næstu leikjum.


Skubala ásamt Paco Gallardo og Chris Armas hafa stýrt liðinu í tveimur síðustu leikjum, í jafntefli og tapi gegn Man Utd.

Þeir undirbúa nú liðið fyrir helgina þegar liðið mætir Everton í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég hef notið upplifuninnar, liðið og teymið hefur sýnt jákvæð viðbrögð. Ég veit að ég tala fyrir Paco og Chris þegar ég segi að það sé heiður að vera á hliðarlínunni hjá þessu félagi," sagði Skubala.

„Við munum halda áfram að vinna hart að okkur til að hjálpa liðinu upp tölfuna á þeim stutta tíma sem við höfum á meðan stjórnin einbeitir sér af langtímalausn fyrir félagið."

Sjá einnig:
Stefnir í að Leeds ráði tímabundinnstjóra út tímabilið


Athugasemdir
banner
banner
banner