„Það er alltaf súrt að tapa. Mér fannst ekkert mikið vera að gerast í þessum leik í fyrri hálfleik. Hvort að bæði lið hafi átt eitt skot á markið. En í stöðunni 1-0 +i síðari hálfleik fékk Sindri Snær algjört dauðafæri sem við fórum illa með. En heilt yfir sköpuðum við okkur ekki nóg í dag.“ Sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur um leikinn eftir 2-0 tap Keflavíkur gegn HK fyrr í dag.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 2 HK
Siggi Raggi eins og hann er kallaður kom inn á dauðafæri sem liðið fékk í stöðunni 1-0 þar sem Sindri Snær brenndi af aleinn í teignum. Eitthvað sem eikennir lið með lítið sjálfstraust?
„Það getur vel verið en við höfum farið illa með færin okkar +i allt sumar. Við höfum skapað okkur fullt en mér fannst við ekki skapa okkur nóg í dag.“
Mikið hefur verið um meiðsli í herbúðum Keflavíkur og menn að detta inn og út úr hóp vegna þess. Enn bættist í meiðslavandræði Keflavíkur í dag.
„Við vorum að endurheimta marga úr meiðslum en þeir voru kannski ekki komnir alveg nógu langt. Magnús Þór þurfti að koma út af vegna meiðsla, Dagur ingi kom út af í hálfleik vegna meiðsla. Nacho fer út af meiddur á sjöttu mínútu og gæti verið alvarlega meiddur þannig að það er bara ástand á okkur. Það vantar líka Sami Kamel í hóp í dag og Ásgeir Pál og fleiri nánast heil varnarlína frá í meiðslum.“
Sagði Siggi Raggi en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir