Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 14. september 2023 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þarf varla að spila hjá Liverpool þegar maður æfir með þessum leikmönnum"
Mynd: EPA

Ben Doak, 17 ára gamall leikmaður Liverpool hefur ekki áhyggjur af því að vera ekki að spila mikið þar sem hann æfir með mörgum heimsklassa leikmönnum.


Doak gekk til liðs við Liverpool frá Celtic síðasta sumar og kom við sögu í tveimur leikjum í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann hefur komið við sögu í einum leik á þessu tímabili.

„Ég byrjaði að æfa á undirbúningstímabilinu og boltinn fór að rúlla. Ég hef haldið áfram að æfa með aðalliðinu, maður þarf að spila á ferlinum en maður þarf varla að spila hjá Liverpool þegar maður æfir hverjum degi með þessum leikmönnum því þú verður betri," sagði Doak.

Draumur orðinn að veruleika fyrir þennan unga Skota.

„Ég er að vinna með bestu leikmönnum heims hjá þessu félagi. Markmiðið er að reyna að fá eins margar mínútur og ég get. Þetta er draumur, manni dreymir um svona þegar maður er krakki. Ég horfði á þessa leikmenn þegar ég var 12-13 ára vinna Meistaradeildina. Nú æfi ég og spila með þeim. Ég er bara að reyna að komast upp á þeirra stall,"


Athugasemdir
banner
banner