Holland byrjar undankeppni HM 2026 virkilega vel. Liðið vann Finnland 2-0 á dögunum og valtaði yfir Möltu í kvöld.
Memphis Depay skoraði fyrstu tvö mörk liðsins og hann hefur því skoraði 50 mörk í hollensku landsliðstreyjunni. Hann jafnaði þar með met Robin van Persie en þeir eru markahæstu landsliðsmenn Hollands frá upphafi.
Memphis Depay skoraði fyrstu tvö mörk liðsins og hann hefur því skoraði 50 mörk í hollensku landsliðstreyjunni. Hann jafnaði þar með met Robin van Persie en þeir eru markahæstu landsliðsmenn Hollands frá upphafi.
Virgil van Dijk bætti þriðja markinu í fyrri hálfleik með skoti fyrir utan teiginn. Liðið bætti síðan við fimm mörkum í seinni hálfleik.
Holland er í 2. sæti G-riðils með sex stig eftir tvo leiki. Finnland er á toppnum með sjö stig eftir fjóra leiki en liðið vann Pólland í kvöld. Pólland er í 3. sæti með sex stig eftir þrjá leiki, Litháen í 4. sæti með 2 stig eftir þrjá leiki og Malta með eitt stig eftir fjóra leiki á botninum.
Aleksandar Mitrovic skoraði þrennu fyrir Serbíu í sigri gegn Andorra. Serbia er í 3. sæti K-riðils með fjögru stig eftir tvo leiki en Andorra án stiga eftir fjóra leiki. Lettland og Albanía gerðu jafntefli í sama riðli, Albanía er í 2. sæti með fimm stig eftir fjóra leiki og Lettland í 4. sæti með fjögur stig eftir þrjá leiki. Topplið Englands sat hjá.
Bosnía, toppliðið í H-riðli, sat hjá í kvöld. Austurríki er í 2. sæti með sex stig eftir tvo leiki en liðið vann San Marínó. Rúmenía er í 3. sæti með sex stig eftir sigur á Kýpur sem er í 4. sæti með þrjú stig eftir þrjá leiki.
Finland 2 - 1 Poland
1-0 Joel Pohjanpalo ('31 , víti)
2-0 Benjamin Kallman ('64 )
2-1 Jakub Kiwior ('69 )
Romania 2 - 0 Cyprus
1-0 Florin Tanase ('43 )
2-0 Dennis Man ('45 )
San Marino 0 - 4 Austria
0-1 Marko Arnautovic ('3 )
0-2 Michael Gregoritsch ('11 )
0-3 Marko Arnautovic ('15 )
0-4 Christoph Baumgartner ('27 )
0-4 Marko Arnautovic ('85 , Misnotað víti)
Latvia 1 - 1 Albania
0-0 Janis Ikaunieks ('21 , Misnotað víti)
0-1 Antonijs Cernomordijs ('29 , sjálfsmark)
1-1 Antonijs Cernomordijs ('45 )
Serbia 3 - 0 Andorra
1-0 Aleksandar Mitrovic ('12 )
2-0 Aleksandar Mitrovic ('24 )
3-0 Aleksandar Mitrovic ('53 , víti)
Netherlands 8 - 0 Malta
1-0 Memphis Depay ('9 , víti)
2-0 Memphis Depay ('16 )
3-0 Virgil van Dijk ('20 )
4-0 Xavi Simons ('61 )
5-0 Donyell Malen ('74 )
6-0 Noa Lang ('78 )
7-0 Donyell Malen ('80 )
8-0 Micky van de Ven ('90 )
Athugasemdir