Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 11:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leverkusen horfir til Man City eftir arftaka Wirtz
Powerade
Grealish til Leverkusen?
Grealish til Leverkusen?
Mynd: EPA
Antoine Semenyo.
Antoine Semenyo.
Mynd: EPA
Slúðurpakki dagsins er tekinn saman af BBC og er í boði Powerade. Þetta er það helsta í slúðrinu:



Leverkusen horfir til Manchester City og Jack Grealish (29) eftir mögulegum arftaka fyrir Florian Wirtz (22) sem virðist á leið til Liverpool. (Sun)

Viktor Gyökeres (27) er brjálaður út í Sporting fyrir að standa ekki við heiðursmannasamkomulag við sig. (Record)

Man City hefur náð samkomulagi við Lyon um 34 milljóna punda kaup á Rayan Cherki (21). (Times)

Arsenal vill fá Kepa Arrizabalaga (30) markmann Chelsea á fimm milljónir puna. (Sky Sports)

Burnley hefur sett 50 milljóna punda verðmiða á miðvörðinn Maxime Esteve (23). Bayern er sagt hafa áhuga. (Football Insider)

Bradley Barcola (22) vængmaður PSG er aðalskotmark Bayern í sumar. Nico Williams (22) hjá Athletic er einnig ofarlega á lista. (Sky Sport í Þýskalandi)

PSG vill fá Ilia Zabarni (22) miðvörð Bournemouth. Bournemouth vill fá 59 milljónir punda fyrir Úkraínumanninn. (L'Equipe)

Tottenham hefur mikinn áhuga á því að fá Antoine Semenyo (25) frá Bournemouth. Man Utd hefur einnig áhuga á sóknarmanninum. (Sky Sports)

Newcastle hefur áhuga á Mohammed Kudus (24) hjá West Ham eftir að hafa misst af Bryan Mbeumo. (Football Insider)

West Ham íhugar skiptidíl við Chelsea varðandi Kudus. Hamrarnir eru undirbúnir fyrir það að Nayef Aguerd fari í sumar, en vilja fá 25 milljónir punda fyrir miðvörðinn. (Teamtalk)

Tottenham vill fá Dorgeles Nene (22) vængmann RB Salzburg. (Teamtalk)
Athugasemdir
banner