Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 17:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Abramovich rífur þögnina: Get vonandi kvatt almennilega einn daginn
Mynd: EPA
Roman Abramovich, fyrrum eigandi Chelsea, hefur ekki verið í viðtölum frá því að honum var gert að selja enska félagið fyrir þremur árum síðan.

Stjórnvöld á Englandi þvinguðu Abramovich í að seja félagið eftir innrás Rússa inn í Úkraínu. Það var Todd Boehly og fólk í kringum hann sem keypti Chelsea á 2,5 milljarða punda og fór sú upphæð inn á frystan bankareikning.

Abramovich samþykkti að koma í viðtal þar sem unnið er að bók um söluna á félaginu.

Hann var spurður út í Chelsea og framtíðina: „Kannski einn daginn þá verður tækifæri þar sem ég get mætt á leik og kvatt almennilega, en það verður ekkert meira en það."

„Ég hef engan áhuga á neinu hlutverki í fótboltafélagi, allavega klárlega ekki tengt meistaraflokki hjá atvinnumannafélagi."

„Það gæti verið eitthvað þar sem ég gæti hjálpað til við akademíu og aðstoðað efnilega leikmenn, gefið þeim sem koma frá erfiðum bakgrunni gott tækifæri, ef það er eitthvað sem ég teldi að ég gæti skipt máli með."

„Þegar kemur að eignarhaldi eða einhverju starfi hjá félagi, þá er ég búinn með þann part í mínu lífi,"
segir Rússinn Abramovich. Hann keypti Chelsea 2003 og þurfti að selja það sumarið 2022.

Í bókinni er fullyrt að Abramovich hafi auðveldað friðarviðræður frá upphafi stríðsins milli Rússa og Úkraínu.

„Það er til gamalt rússneskt máltæki: „Hundarnir gelta en hjólhýsið heldur áfram", og það á við hér."

„Hvað sem ég geri, fólk mun alltaf saka mig um að reyna ná einhverju fram fyrir sjálfan mig. Þegar allt kemur til alls þá hef ég gert það sem ég hef gert einfaldlega til að reyna hjálpa."

Athugasemdir
banner
banner