Það þykir nokkuð augljóst að sænska markavélin Viktor Gyökeres skiptir um félag í sumar en óljóst er hver næsti áfangastaður hans verður.
Gyökeres var með heiðursmannasamkomulag við Sporting sem ætlaði að selja leikmanninn fyrir svo lítið sem 70 milljónir evra í sumar en portúgalska félagið hefur ákveðið að hækka upphæðina.
Gyökeres er með söluákvæði upp á 100 milljónir og fékk loforð frá stjórnendum Sporting um að vera seldur fyrir minni pening í sumar.
Hann hefur vakið gífurlega mikinn áhuga ýmissa stórvelda þar sem Arsenal og Manchester United hafa verið orðuð hvað mest við hann.
Record greinir frá því að nú vilji Sporting fá minnst 80 milljónir fyrir framherjann sinn og að þessi ákvörðun hafi reitt Gyökeres til reiði þar sem upphæðin er hærri heldur en það sem samið var um. Gyökeres brást við með því að fjarlægja nafn Sporting af Instagram síðu sinni.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að Juventus og Al-Hilal hafi bæst við kapphlaupið um Gyökeres á síðustu sólarhringum.
Al-Hilal er í leit að nýjum framherja til að leiða framlínuna ásamt Aleksandar Mitrovic. Félagið hefur reynt við Victor Osimhen og Benjamin Sesko og er núna í sambandi við Sporting í tilraun til að kaupa Gyökeres.
Gyökeres, sem er 27 ára, skoraði 54 mörk og gaf 13 stoðsendingar í 52 leikjum með Sporting á tímabilinu. Hann er þar að auki með 16 mörk í 25 landsleikjum fyrir Svíþjóð.
Athugasemdir