Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 16:17
Elvar Geir Magnússon
Belfast
Íslendingar hafa meiri trú en veðbankar
Frá landsliðsæfingu í Belfast í gær.
Frá landsliðsæfingu í Belfast í gær.
Mynd: KSÍ
Ísland mætir Norður-Írlandi í vináttulandsleik á Windsor Park í kvöld í sínum síðasta leik áður en kemur að undankeppni HM í haust. Leikurinn hefst klukkan 18:45.

Samkvæmt skoðanakönnun sem hefur verið á forsíðu Fótbolta.net undanfarnar daga spá 61% lesenda íslenskum sigri.

Norður-Írland er í 71. sæti heimslista FIFA en Ísland er í 74. sæti. Lengjan er með stuðulinn 2,11 á heimasigur, 2,93 á jafntefli og 3,39 á íslenskan sigur.

Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 -  0 Ísland

Mynd: Fótbolti.net

Athugasemdir