Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man City fær markvörð frá Chelsea
Mynd: EPA
Manchester City er að ganga frá kaupum á Marcus Bettinelli frá Chelsea. Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.

Bettinelli verður þriðji markvörður Manchester City og tekur stöðu Scott Carson í leikmannahópinum.

Bettinelli er 33 ára gamall og hefur verið hjá Chelsea í fjögur ár, en aðeins fengið að spila tvo leiki með aðalliðinu.

Þar áður var hann hjá Fulham og lék í heildina 120 leiki fyrir félagið.

Þetta þýðir að Bettinelli fer með Man City á HM félagsliða sem þriðji markvörður.
Athugasemdir
banner