Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir Tottenham hafa tekið ranga ákvörðun
Mynd: EPA
Ally McCoist, sérfræðingur talkSPORT, er á því að Tottenham hafi tekið ranga ákvörðun með því að láta Ange Postecoglou fara sem stjóra. Postecoglou var látinn fara á föstudag þrátt fyrir að hafa unnið fyrsta titil félagsins í 17 ár með því að vinna Evrópudeildina í vetur.

Tottenham endaði í 17. sæti í úrvalsdeildinni og tapaði 22 af 38 leikjum sínum í deildinni. En McCoist er á því að Postecoglou hafi gert nóg til að halda starfi sínu.

„Ég er á því að þetta hafi ekki verið rétt ákvörðun að losa sig við Ange."

„Ég veit að lokastaðan í deildinni var óásættanleg, ég skil það algjörlega, en mér fannst hann segja það skýrt að öll eggin væru farin í þá körfu að landa titli."

„Frá mér vega plúsarnir þyngra en mínusarnir. Að vinna Evróputitil, að vinna titil, fyrsta titilinn í 17 ár, fyrsta Evróputitilinn í ég veit ekki hversu langan tíma, og að koma liðinu í Meistaradeildina."

„Mér fannst það eiga að gefa honum nægt kredit til að í það minnsta halda stafinu, en það var greinilega ekki staðan."

Athugasemdir