Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þróttur hafnaði tilboði frá Svíþjóð
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnað tilboði frá sænska félaginu Östersund í Kára Kristjánsson.

Kári var eftirsóttur í vetur af bæði Val og ÍA en Þróttur hafnaði öllum tilboðum í leikmanninn.

Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem verður 21 árs í júlí. Hann skoraði ellefu mörk í Lengjudeildinni í fyrra og er kominn með eitt deildarmark á þessu tímabili.

Östersund er í sænsku B-deildinni og er með einn Íslending innan sinna raða. Það er markmaðurinn Adam Ingi Benediktsson.

Liðið er sem stendur í 8. sæti deildarinnar, með sextán stig eftir ellefu umferðir.
Athugasemdir
banner
banner