Dortmund hefur hafnað öðru tilboði frá Chelsea í Jamie Gittens. Frá þessu greinir Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi.
Tilboðið hljóðar upp á um 42 milljónir punda. Fram kemur að Dortmund hafi verið fljótt að afþakka tilboðið, þýska félagið vill hærri upphæð. Sagt er að Dortmund vilji 55 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Gittens er tvítugur enskur vængmaður sem uppalinn er m.a. uppalinn hjá Chelsea og Manchester City.
Hann hefur verið hjá Dortmund síðan 2020 og verið hluti af enska U21 landsliðinu. Hann skoraði tólf mörk og lagði upp fimm í 48 leikjum á liðinni leiktíð.
Chelsea þarf að hafa hraðar hendur ef félagið vill hafa Gittens með á HM félagsliða en sá gluggi lokar klukkan 19:00 í kvöld.
Athugasemdir