Ísland mætir Norður-Írlandi í vináttulandsleik á Windsor Park í kvöld í sínum síðasta leik áður en kemur að undankeppni HM í haust.
Íslenski hópurinn hefur verið saman á Bretlandseyjum núna í rúma viku og Hákon Arnar Haraldsson, fyrirliði Íslands í þessum glugga, var spurður að því á fréttamannafundi hversu mikilvæg þessi vika hefur verið?

„Mjög mikilvæg. Það er langt síðan við komum saman síðast og hópurinn verður þéttari og þéttari með hverjum deginum. Við erum saman allan daginn og maður kynnist öllum vel. Það mun skipta miklu máli í haust að við séum þéttir og stöndum saman," svaraði Hákon.
Hann segir að leikurin í kvöld, sem hefst 18:45 að íslenskum tíma, gæti virkað sem gott veganesti inn í undankeppnina.
„Svo sannarlega. Við þurfum að nota hvern einasta leik til að undirbúa okkur. Við fáum fjóra leiki með Arnari fyrir undankeppnina og hver mínúta skiptir máli og við verðum að nýta tímann," segir Hákon.
Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil
Athugasemdir