Youri Tielemans, miðjumaður Aston Villa og belgíska landsliðsins, hefur ekki útilokað félagaskipti frá Villa í sumar.
Tielemans átti mjög gott tímabil með Villa, skoraði fimm mörk og lagði upp tíu í öllum keppnum. Hans frammistaða hefur vakið athygli og er Al-Hilal sagt hafa áhuga á miðjumanninum. Fyrir leikinn gegn Wales sem spilaður í gær var Tielemans spurður út í sína framtíð.
„Það er ekkert ákveðið með hvort ég verði áfram eða fari. En mér líður vel hjá Aston Villa. Ég finn fyrir mikilli trú frá félaginu og stjóranum," sagði Tielemans.

Þá hefur Al-Ahli, annað félag í Sádi-Arabíu, áhuga á Morgan Gibbs-White, miðjumanni enska landsliðsins og Nottingham Forest.
Samkvæmt talkSPORT vill Gibbs-White bara fara í stærra félag í úrvalsdeildinni eða annað innan Evrópu. Al-Ahli er í leit að miðjumanni til að fá inn í stað Gabri Veiga sem fór til Porto.
Manchester City hafði áhuga á Gibbs-White en eftir kaupin á Tijjani Reijnders frá AC Milan er líklegt að ekkert verði úr mögulegum skiptum Englendingsins til City. Forest setti 100 milljóna punda verðmiða á Gibbs-White.
Athugasemdir