Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 12:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zubimendi fer að öllum líkindum til Arsenal og Sesko vill líka koma
Martin Zubimendi
Martin Zubimendi
Mynd: EPA
Þrátt fyrir fréttir frá Spáni sem fjalla um möguleg félagaskipti Martin Zubimendi frá Real Sociedad til Real Madrid, þá er búist við því að hann fari í læknisskoðun hjá Arsenal fljótlega.

Arsenal er svo gott sem komið með samkomulag við Sociedad um kaup á Zubimendi. Félagið er tilbúið að greiða 51 milljón punda til að virkja riftunarákvæðið í samningi spænska miðjumannsins.

Einnig er búið að ná samkomulagi við Zubimendi sjálfan um kaup og kjör.

Það er ekki það eina sem er í gangi á skrifstofu Arsenal því enska félagið er að reyna fá Benjamin Sesko, framherja RB Leipzig, í sínar raðir.

Tvö félög frá Sádi-Arabíu hafa spurst fyrir um Slóvenann en Sesko vill frekar fara til Arsenal, finnst hann of ungur til að fara til Sádi.

Arsenal er að vinna í munnlegu sakomulagi um kaupin, en á meðan það er óklárað geta önnur félög blandað sér í baráttuna. Hann er 22 ára hávaxinn framehrji sem lengi hefur verið á blaði Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner