Sky Sports segir frá því í dag að Liverpool sé nú búið að setja sig í samband við Bournemouth vegna mögulegra kaupa á Milos Kerkez.
Liverpool hefur verið sterklega orðað við hann síðasta mánuðinn en ekkert tilboð hefur borist.
Bournemouth er meira að segja búið að finna sér mann í staðinn, en það veltur á því að Kerkez fari. Það er Adrien Truffert sem spilar hjá Rennes.

Vinstri bakvörðurinn Kerkez átti mjög gott tímabil hjá Bournemouth og er sagður spenntur fyrir því að fara til ensku meistaranna. Hann er 21 árs og á þrjú ár eftir af samningi sínum.
Ungverjinn er talinn kosta um 45 milljónir punda.
Athugasemdir