Wirtz, Zubimendi, Osimhen, Zirkzee, Sesko, Kerkez og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   þri 10. júní 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Heldur þú að ég sé að fara koma hérna á hverjum einasta morgni eins og hálfviti?"
Yfirfag Blackburn í janúar.
Yfirfag Blackburn í janúar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samdi við Malmö eftir að hafa rift við Blackburn.
Samdi við Malmö eftir að hafa rift við Blackburn.
Mynd: Malmö
John Eustace.
John Eustace.
Mynd: Blackburn
Arnór Sigurðsson gekk í raðir sænsku meistaranna í Malmö í febrúar eftir að hafa fengið samningi sínum við Blackburn rift. Hann átti innan við hálft ár eftir af samningi sínum þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði ekki hluti af leikmannahópi liðsins seinni hluta tímabilsins.

Þær fréttir komu landsliðsmanninum mjög á óvart en það var að styttast í endurkomu hans á völlinn eftir erfitt hálft ár sem litaðist af veikindum og meiðslum. Hann var í viðtali hjá ChessAfterDark á dögunum.

„Ég var eiginlega ekki brjálaður (að hafa ekki verið skráður í leikmannahópinn), eins skrítið og það hljómar. Eina sem ég var brjálaður út í var tímapunkturinn, að þeir biðu þangað til glugginn væri lokaður til að tilkynna mér þetta. Ég kem inn á æfingu, venjulegur æfingadagur, og sú sem er á skrifstofunni þegar maður kemur inn segir mér að þjálfarinn vilji tala við mig. Ég fer inn og sest og hann tilkynnir mér að stjórnin hafi tekið þessa ákvörðun og hann hafi ekkert með þetta að gera, tilkynnti mér að ég yrði ekki í leikmannahópnum af því hann væri of stór. Félagið fékk inn leikmenn alveg undir lok gluggans. Hann sagðist sjálfur vera brjálaður, skildi ekki hvernig vinnubrögð þetta væru," segir Arnór.

„Ég var svolítið týndur bara, ég fór bara inn í klefa og fór bara inn. Þjálfarinn (John Eustace) sagði við mig að ég mætti alveg æfa með liðinu fram á sumarið, ég væri með það mikil gæði að hann vildi hafa mig á æfingum. Ég horfði bara á hann og sagði: „heldur þú að ég sé að fara koma hérna á hverjum einasta morgni eins og hálfviti að æfa með ykkur, þú hlýtur að sjá hvernig þetta lítur út?" Hann skildi það alveg. Ég sagðist ætla heim, til Íslands, ætlaði að ræða við umboðsmanninn og myndi svo heyra í honum einhvern tímann. Ég var ekkert pirraður út í hann. Hann hættir líka bara einhverri viku seinna hjá Blackburn. Þeir sögðu að það sem hefði verið í gangi á bakvið mælinn hefði fyllt mælinn."

„En auðvitað var þetta sjokk. Það var pirrandi að þeir gátu ekki sagt mér þetta í janúar. Af því að ég var ekki að fara endursemja..."

„Það voru einhverjar viðræður, ég sagði við þá að ég teldi það best fyrir mig að taka slaginn einhvers staðar annars staðar. Mig langaði að vera áfram á Englandi. Ég var nálægt því að fara í síðasta sumarglugga til Norwich. Það gerði þetta ennþá meira pirrandi, að þeir hafi haldið mér þá og svo fengið þessa meðferð (spilaði lítið) og (ekki fengið að vita þetta í janúar). Eftir janúargluggann voru bara örfáir gluggar opnir."

„Ég náði aldrei skriði, náði bara að æfa hér og þar, fann fyrir veikindum og var aldrei að fara byrja leiki í því ástandi. Svo meiðist ég. Ég skil að ég fékk ekki fleiri leiki af því ég var bara ekki til taks. En ég var nálægt því að koma til baka þegar ég fæ svo þessa tilkynningu (að ég yrði ekki í hópnum). Ég hefði skilið þetta ef ég hefði verið frá fram í apríl, en þarna bara var ég að verða klár og þjálfarinn spenntur að fá mig til baka,"
segir Arnór.

„Það pirraði mig að þetta kom frá þjálfaranum, ekki frá þeim sem tók þessa ákvörðun. Þetta átti bara að koma frá þeim aðila sem tók þessa ákvörðun, hann hefði átt að setjast fyrir framan mig og segja mér þetta, en hann henti þjálfaranum undir rútuna. Léleg vinnubrögð, 100 prósent."

Hann fékk í kjölfarið samningi sínum við Blackburn rift. Viðtalið má nálgast hér að neðan. Hann segir í viðtalinu frá því að síðast árið hefði tekið virkilega á andlega.

„Ef ég hefði ekki verið með fjölskylduna mína og vini mína með mér í gegnum þetta allt, þá hefði ég bara krassað."


Athugasemdir