Man Utd gæti gert tilboð í Hjulmand - Tottenham ætlar að fá Eze - Fulham sýnir Höjlund áhuga
   lau 16. ágúst 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Selfoss ekki lengur með fullt hús
Kvenaboltinn
Mynd: Hrefna Morthens
Selfoss 1 - 1 ÍH
1-0 Björgey Njála Andreudóttir ('35)
1-1 Alma Mathiesen ('93)

Selfoss tók á móti ÍH í eina leik gærdagsins í 2. deild kvenna og náði forystunni í fyrri hálfleik þegar Björgey Njála Andreudóttir skoraði.

Selfoss hafði fram að þessu verið með fullt hús stiga í deildinni, 12 sigra úr 12 leikjum, en fékk jöfnunarmark á sig í uppbótartíma seinni hálfleiks.

Alma Mathiesen kom boltanum þá inn á 93. mínútu til að bjarga stigi fyrir ÍH.

Selfoss er með fimm stiga forystu á ÍH á toppinum á 2. deildinni.
2. deild kvenna - A úrslit
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Selfoss 13 12 1 0 53 - 9 +44 37
2.    ÍH 13 10 2 1 67 - 16 +51 32
3.    Völsungur 12 8 0 4 43 - 26 +17 24
4.    Fjölnir 12 6 2 4 27 - 25 +2 20
Athugasemdir
banner
banner