Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. febrúar 2023 15:20
Aksentije Milisic
Xavi: Ég var sá sem treysti Raphinha þegar hann var gagnrýndur
Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Raphinha, leikmaður Barcelona var langt því frá að vera sáttur þegar hann var tekinn af velli í leiknum gegn Manchester United á fimmtudeginum síðasta.


Raphinha átti góðan leik og var helsta ógn Börsunga í sóknarleiknum en leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Liðin mætast aftur á Old Trafford á fimmtudaginn kemur.

Eins og áður segir þá var leikmaðurinn brjálaður þegar Xavi tók hann af velli. Hann settist niður og barði nokkrum sinnum hressilega í sætið fyrir framan sig. Hann baðst síðar afsökunar á þessu.

„Ég er sá sem treysti honum mest. Hann er leikmaðurinn sem hefur skapað flest mörk fyrir okkur. Hann skorar, hann tekur menn á, hann er frábær," sagði Xavi.

„Þegar hann var gagnrýndur, þá hafði ég engar efasemdir um það að hann myndi slá í gegn hérna."

Barcelona mætir Cadiz í spænsku deildinni í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner