Nicolas Jackson er kominn með tvö mörk fyrir Chelsea gegn West Ham í Lundúnum.
Senegalski framherjinn kom Chelsea yfir snemma leiks með því að klobba Alphonse Areola.
Jadon Sancho lagði upp markið en þetta var í fyrsta sinn sem Sancho tekst að leggja upp í tveimur leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni.
Á 18. mínútu bætti Jackson við öðru marki sínu eftir að Moises Caicedo þræddi boltann í gegn. Afgreiðslan hjá Jackson var einföld og yfirveguð. Hans fjórða mark á tímabilinu.
Sjáðu annað mark Jackson
Heimamenn gátu og áttu líklega að fá dauðafæri til að koma sér aftur inn í leikinn á 28. mínútu. Wesley Fofana hélt í treyju Crysencio Summerville sem féll í teignum, en engin vítaspyrna dæmd.
Sjáðu vítaspyrnuna sem West Ham vildi fá
Staðan er 2-0 fyrir Chelsea í hálfleik.
Athugasemdir