Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
banner
   lau 21. september 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Endrick og Orri bíða báðir eftir fyrsta byrjunarliðsleiknum
Orri Steinn kom til Sociedad í lok síðasta mánaðar
Orri Steinn kom til Sociedad í lok síðasta mánaðar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Endrick hefur aðeins spilað 23 mínútur en skorað tvö mörk
Endrick hefur aðeins spilað 23 mínútur en skorað tvö mörk
Mynd: Getty Images
Real Madrid tekur á móti nýliðum Espanyol í 6. umferð La Liga á Spáni í dag en alls eru fjórir leikir á dagskrá.

Madrídingar hafa ekki alveg verið nógu sannfærandi í byrjun tímabils, þrátt fyrir að vera með langsterkasta hóp Evrópu.

Í dag fær liðið tækifæri til að koma sér almennilega á skrið, en Carlo Ancelotti, þjálfari liðsins, gæti ákveðið að hvíla nokkra lykilmenn og færa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri til að skína.

Brasilíumaðurinn Endrick hefur gert vel þegar hann hefur komið inn af bekknum en alls er hann með 2 mörk á þeim 23 mínútum sem hann hefur spilað.

Orri Steinn Óskarsson og hans menn í Real Sociedad hafa byrjað tímabilið ömurlega en liðið heimsækir Real Valladolid í dag. Orri hefur ekki enn byrjað leik, en það ætti að styttast í það miðað við gengi liðsins.

Leikir dagsins:
12:00 Valladolid - Real Sociedad
14:15 Osasuna - Las Palmas
16:30 Valencia - Girona
19:00 Real Madrid - Espanyol
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 5 5 0 0 17 4 +13 15
2 Atletico Madrid 5 3 2 0 9 2 +7 11
3 Real Madrid 5 3 2 0 9 2 +7 11
4 Villarreal 5 3 2 0 11 8 +3 11
5 Athletic 6 3 1 2 8 6 +2 10
6 Celta 5 3 0 2 13 10 +3 9
7 Betis 5 2 2 1 5 4 +1 8
8 Mallorca 6 2 2 2 4 4 0 8
9 Alaves 5 2 1 2 7 6 +1 7
10 Vallecano 5 2 1 2 7 6 +1 7
11 Girona 5 2 1 2 8 8 0 7
12 Espanyol 5 2 1 2 5 5 0 7
13 Osasuna 5 2 1 2 6 10 -4 7
14 Sevilla 5 1 2 2 4 6 -2 5
15 Leganes 6 1 2 3 3 7 -4 5
16 Real Sociedad 6 1 1 4 3 7 -4 4
17 Valladolid 5 1 1 3 2 13 -11 4
18 Getafe 5 0 3 2 2 4 -2 3
19 Las Palmas 5 0 2 3 6 10 -4 2
20 Valencia 5 0 1 4 3 10 -7 1
Athugasemdir
banner
banner
banner