Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
   lau 21. september 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Fylgir Man Utd eftir sigrinum á Barnsley?
Marcus Rashford er með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum
Marcus Rashford er með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum
Mynd: Getty Images
Átta leikir eru á dagskrá í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

West Ham og Chelsea mætast í Lundúnaslag á London-leikvanginum, en Hamrarnir eru með 4 stig á meðan Chelsea er með 7 stig.

Aston VIlla, sem vann sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu á dögunum, spilar við Wolves á meðan Fulham tekur á móti Newcastle United.

Leicester og Everton eigast við á King Power-leikvanginum og þá spilar Liverpool við Bournemouth á Anfield. Liverpool tapaði óvænt fyrir Nottingham Forest síðustu helgi, en tókst að svara því ágætlega með því að vinna Milan, 3-1, í vikunni.

Southampton og Ipswich mætast í nýliðaslag og þá spilar Tottenham við Brentford.

Í lokaleik dagsins eigast við Crystal Palace og Manchester United á Selhurst Park. Erik ten Hag, stjóri United, er að vonast til þess að 7-0 slátrunin á Barnsley í enska deildabikarnum í vikunni hafi gefið leikmönnum aukið sjálfstraust.

Leikir dagsins:
11:30 West Ham - Chelsea
14:00 Aston Villa - Wolves
14:00 Fulham - Newcastle
14:00 Leicester - Everton
14:00 Liverpool - Bournemouth
14:00 Southampton - Ipswich Town
14:00 Tottenham - Brentford
16:30 Crystal Palace - Man Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 4 4 0 0 11 3 +8 12
2 Arsenal 4 3 1 0 6 1 +5 10
3 Newcastle 4 3 1 0 6 3 +3 10
4 Liverpool 4 3 0 1 7 1 +6 9
5 Aston Villa 4 3 0 1 7 6 +1 9
6 Brighton 4 2 2 0 6 2 +4 8
7 Nott. Forest 4 2 2 0 4 2 +2 8
8 Chelsea 4 2 1 1 8 5 +3 7
9 Brentford 4 2 0 2 6 6 0 6
10 Man Utd 4 2 0 2 5 5 0 6
11 Bournemouth 4 1 2 1 5 5 0 5
12 Fulham 4 1 2 1 4 4 0 5
13 Tottenham 4 1 1 2 6 4 +2 4
14 West Ham 4 1 1 2 5 6 -1 4
15 Leicester 4 0 2 2 5 7 -2 2
16 Crystal Palace 4 0 2 2 4 7 -3 2
17 Ipswich Town 4 0 2 2 2 7 -5 2
18 Wolves 4 0 1 3 4 11 -7 1
19 Southampton 4 0 0 4 1 8 -7 0
20 Everton 4 0 0 4 4 13 -9 0
Athugasemdir
banner
banner
banner