Chelsea er komið í forystu gegn West Ham en markið kom eftir tæpar fjórar mínútur.
Mohammed Kudus átti skot hinum megin á vellinum sem Robert Sanchez varði áður en Chelsea keyrði fram völlinn. Gestirnir fengu aukaspyrnu á eigin vallarhelmingi og upp úr henni kom markið.
Jadon Sancho fékk boltann, átti sendingu á vinstri vænginn á Nicolas Jackson sem fékk að keyra óáreittur inn í teiginn áður en hann klobbaði Alphonse Areola í markinu.
Allt of auðvelt fyrir gestina sem eru komnir í 1-0 en markið má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér
Þetta er þriðja deildarmark Jackson á þessu tímabili.
Athugasemdir