Valladolid 0 - 0 Real Sociedad
Real Valladolid og Real Sociedad gerðu markalaust jafntefli í La Liga á Spáni í dag. Landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson byrjaði sinn fyrsta leik með Sociedad og lék klukkutíma.
Orri Steinn hafði komið inn af bekknum í þremur deildarleikjum með Sociedad áður en hann fékk tækifærið í byrjunarliðinu í dag.
Hann náði ekki að skapa sér mikið á þessum rúmu sextíu mínútum sem hann spilaði.
Orri átti aðeins tólf snertingar og enga marktilraun. Í þessum tólf snertingum var hann með sex heppnaðar sendingar og þá vann hann tvö skallaeinvígi.
Sociedad er í 16. sæti með aðeins fimm stig úr sjö deildarleikjum.
Athugasemdir