Landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson er í byrjunarliði Real Sociedad í fyrsta sinn er liðið mætir Real Valladolid í La Liga í dag.
Orri Steinn kom til Sociedad frá FCK undir lok félagaskiptagluggans en hann hefur byrjað á bekknum í öllum þremur leikjum sínum með liðinu.
Hann fær tækifærið í byrjunarliðinu gegn Valladolid í dag.
Liðin eigast við klukkan 12:00 á heimavelli Valladolid, en Sociedad hefur ekki unnið leik síðan hann kom til félagsins.
Sociedad hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum, en vonast til að koma sér á skrið með sigri í dag.
Byrjunarlið Sociedad: Remiro (M), Aramburu, Zubeldia, Aguerd, Gomez, Kubo, Zubimendi, Turrientes, Sucic, Óskarsson, Becker.
???? Our ???????? ???? @RealValladolid#RealValladolidRealSociedad pic.twitter.com/VuYDOIS4lw
— Real Sociedad ???????? ???????? (@RealSociedadEN) September 21, 2024
Athugasemdir