Greenwood eftirsóttur - Isak til PSG? - Chelsea vill gera skiptidíl við Inter
banner
   lau 21. september 2024 14:35
Brynjar Ingi Erluson
Díaz með tvö mörk á tveimur mínútum - Misheppnað úthlaup hjá Kepa
Mynd: Getty Images
Luis Díaz skoraði tvö mörk á tveimur mínútum og kom Liverpool í 2-0 forystu gegn Bournemouth á Anfield.

Liverpool fékk á sig mark snemma leiks en sem betur fer fyrir heimamenn tók VAR-markið af Antoine Semenyo.

Rúmum tuttugu mínútum síðar tók Díaz forystuna fyrir Liverpool eftir langa og stórkostlega sendingu Trent Alexander-Arnold fram völlinn.

Sendingin var frábær en Kepa Arrizabalaga, markvörður Bournemouth, hefði átt að gera betur. Hann tók úthlaup og ætlaði sér að mæta Díaz, en hikaði og hætti síðan við sem gaf Díaz möguleikann á því að komast framhjá honum og skora.

Kólumbíumaðurinn skoraði annað mark sitt tveimur mínútum síðar og það aftur eftir sendingu Alexander-Arnold. Englendingurinn fékk að hlaupa með boltann í átt að teignum áður en hann fann Díaz vinstra megin sem setti boltann á milli lappa hjá Kepa og inn.

Sjáðu fyrra mark Díaz
Sjáðu annað mark Díaz
Athugasemdir
banner
banner
banner