Það var vakin athygli á því í Innkastinu á dögunum á því hvernig ÍA nálgaðist leiki gegn KR og KA í Bestu deildinni á mismunandi hátt miðað við sendingar.
ÍA vann 1-0 sigur á KR á heimavelli en aðalmálið í þeim leik var að verjast vel og leyfa KR að hafa boltann.
ÍA vann 1-0 sigur á KR á heimavelli en aðalmálið í þeim leik var að verjast vel og leyfa KR að hafa boltann.
En Skagamenn töpuðu svo 2-0 fyrir KA í leik þar sem sendingarnar þeirra voru talsvert fleiri.
„Samkvæmt WyScout var ÍA með 202 reyndar sendingar í leiknum gegn KR og 114 held ég heppnaðar. Það voru 502 á móti KA. Munurinn hvernig ÍA nálgaðist útileik við KA miðað við heimaleik gegn KR, það munar 300 sendingum," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, í Innkastinu.
„Það er gjörsamlega sturluð tölfræði," sagði Siggi en hægt er að hlusta á allan þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.
Það er áhugavert að þetta hafi virkað gegn KR.
„Þeir eru hérna á heimavelli, leggjast í lágvörn og bomba fram. Því miður erum við á þeim stað að það virðist duga liðum," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir leikinn gegn ÍA en næsti leikur KR-inga er gegn Breiðabliki.
Athugasemdir