Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. febrúar 2023 14:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Verða með fyrirliðabönd í úkraínsku fánalitunum
Mynd: EPA

Leikir dagsins í enska boltanum eru seinna á ferðinni á þessum laugardegi en venjulega en það er vegna þess að Newcastle átti upphaflega að spila í hádeginu en spilar úrslitaleik deildabikarsins á morgun.


Fjórir leikir eru á dagskrá kl. 15 en Leicester vakti athygli á því að Wilfried Ndidi mun bera fyrirliðaband í úkraínsku fánalitunum.

Allir fyrirliðar dagsins munu gera slíkt hið sama en þetta er gert vegna þess að í dag er ár frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Leicester mætir toppliði Arsenal en í byrjunarliði Arsenal er meðal annars Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko sem hefur komið gríðarlega sterkur inn í liðið eftir komuna frá Manchester City í sumar.


Athugasemdir
banner
banner