Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. júlí 2010 14:17
Hörður Snævar Jónsson
Viktor Unnar Illugason í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason er genginn í raðir Selfoss frá Val. Þetta staðfesti Viktor í samtali við Fótbolta.net.

Viktor mun spila með Selfoss út þessa leiktíð og er löglegur með liðinu á sunnudag gegn KR.

Viktor er 20 ára gamall framherji sem gekk í raðir Vals fyrir síðasta tímabil frá Reading.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 er hann lék tíu leiki í Landsbankadeildinni og VISA-bikarnum fyrir Breiðablik.

Viktor glímdi svo við mikið af meiðslum hjá Reading og kom þá aftur heim.

Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar eftir að hann tók við.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Selfoss fær en liðið hefur fengið einn Svía og tvo frá Fílabeinsströndinni.
banner
banner