Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
   fim 21. júní 2012 22:30
Magnús Már Einarsson
Haukur Lár með hárkollu: Hlýtur að kosta tíu þúsund kall inn
Mynd: Björn Ingvarsson
,,Við vorum í helvítis basli með þá í byrjun en þegar við náum okkar spili er erfitt að brjóta okkur niður," sagði Haukur Lárusson varnarmaður Fjölnis eftir 2-0 sigur liðsins á Tindastóli í fyrstu deild karla í kvöld.

Fjölnismenn eru á toppnum eftir sigurinn en Grafarvogsbúar hafa byrjað tímabilið vel.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  0 Tindastóll

,,Við erum á pari miðað við það sem við erum að stefna að. Okkur var spáð 7. sæti en við vissum að við værum miklu betri en það. Við ætlum að sanna það að við erum ekkert 7. sætis lið. Við stefnum upp og við ætlum að fara þangað."

Fjölnismenn hafa skorað 19 mörk í fyrstu deildinni og liðið skorar nóg af mörkum. ,,Það er alltaf gaman á Fjölnisvellinum. Hérna er alltaf veisla, markið hjá Tóta í dag er screamer, það er ekki leiðinlegt að sjá svona mörk í dag." sagði Haukur sem vill fá fleiri Fjölnismenn á völlinn en áhorfendur voru ekki margir í kvöld.

,,Það hlýtur að kosta tíu þúsund kall fyrst það voru svona fáir. Veðrið var frábært og menn þurfa að bera á sig sólarvörn, ég þurfti allavega að gera það, það er alltaf veisla."

,,Í kvöld voru góðir styrktartónleikar í dag fyrir góðan Grafarvogsbúa og þeir sem voru þar voru afsakaðir en ef þeir voru ekki þar þá voru þeir ekki afsakaðir."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar má meðal annars sjá rándýra hárkollu sem Haukur var með í viðtalinu.
Athugasemdir
banner