,,Alltaf þegar ég hef spilað hérna þá hef ég alltaf verið í tómu ströggli og veseni, en mér fannst við bara spila þá útaf vellinum í dag," sagði Hólmar Örn Rúnarsson, leikmaður FH eftir 2-7 sigur liðsins á ÍA í Pepsi-deildinni.
,,Við spiluðum bara vel og fengum nóg pláss á boltanum. Það var alltaf laus maður og þetta var bara flott í dag."
,,Mjög sáttur við menn í dag og vonandi höldum við bara svona áfram. Ég vona að ég hangi bara inni og var hrikalega ánægður með markið og það með vinstri, ekki á hverjum degi sem að það gerist," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























