„Það er vægt orð... sárt,“ sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA allt annað en sáttur eftir 2-2 jafntefli við Hauka á Akureyri í kvöld. Haukar jöfnuðu með nánast síðustu snertingu leiksins þar sem að aðstoðardómari flaggaði til merkis um það að boltinn hefði farið yfir marklínuna þegar heimamenn héldu að Darren Lough hefði náð að hreinsa frá á marklínu.
Lestu um leikinn: KA 2 - 2 Haukar
„Þetta mark í lokin segja mínir menn að hafi aldrei verið mark.“
Gunnlaugur var einnig langt frá því að vera ánægður með þá ákvörðun KSÍ að setja Snorra Pál Einarsson sem aðstoðardómara á leik kvöldsins. „Það er gjörsamlega með ólíkindum að þegar fréttir dagsins sýna það að einn af þjálfurum félagsins hafi verið dæmdur í mánaðar bann. Að sami dómari á þeim leik sem skrifar skýrslu sé settur á línuna í þessum leik er mér gjörsamlega fyrirmunað að skilja.“
Nánar er rætt við Gunnlaug í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir






















