Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
   sun 08. júlí 2012 20:17
Jóhann Norðfjörð
Bjarni Guðjóns: Tvö frábær mörk frá Óskari Erni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er ánægður með sigurinn fyrst og fremst, leikurinn var í sjálfu sér ekkert alltof góður, allavega fyrri hálfleikurinn," sagði Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR eftir 1-2 sigur á ÍBV í bikarnum í kvöld.

,,Mér fannst seinni hálfleikurinn aðeins betri og við fengum nokkrar ágætis sóknir sem við náðum ekki að skapa það sem við vildum úr í lokin. En það komu tvö frábær mörk hjá Óskari Erni og mjög sterkur sigur."

Björn Jónsson kom inná sem varamaður og lagði strax upp jöfnunarmark KR í leiknum eftir að liðið lenti undir í fyrri hálfleik.

,,Björn er mjög hæfileikaríkur fótboltamaður en hefur verið mjög óheppinn með meiðsli. Hann er búinn að vinna mjög mikið í sínum málum og verið duglegur að æfa eins og aðrir ungir strákar í KR og núna kemur hann inná og kemur með nýja vídd inn í leikinn hjá okkur. Hann sýndi það í dag og þetta höfum við í mörgum, mikil gæði."

Nánar er rætt við Bjarna í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner