Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   mið 15. október 2014 14:30
Magnús Már Einarsson
Fjögur félög berjast um Hallgrím Mar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fjögur félög í Pepsi-deildinni berjast þessa dagana um Hallgrím Mar Steingrímsson leikmann KA.

Hallgrímur Mar hefur verið lykilmaður hjá KA undanfarin ár en hann skoraði níu mörk í fyrstu deildinni í sumar og var valinn í lið ársins.

Þessi 24 ára gamli leikmaður ætlar að róa á önnur mið þegar samningur hans við KA rennur út síðar í mánuðinum.

Á dögunum æfði Hallgrímur Mar með KR en í samtali við Fótbolta.net í dag staðfesti hann að fjögur félög í Pepsi-deildinni hafi sýnt sér áhuga.

Hallgrímur segist reikna með að taka ákvörðun um framtíð sína fyrir mánaðarmót.
Athugasemdir
banner
banner