Heimild: Vestri
Andy Pew farinn frá Vestra - Ekki hættur í boltanum
Varnarmaðurinn Andy Pew hefur yfirgefið Vestra eftir eitt tímabil hjá félaginu. Pew er 37 ára en samkvæmt heimasíðu Vestra vill hann vera nær sex ára syni sínum sem er fyrir sunnan.
Pew segir það erfitt að yfirgefa Vestra.
„Ég þarf að fara annað af fjölskylduástæðum. Ég er samt ekki að kveðja fótboltann. Ég tel mig enn hafa mikið að gefa og við sjáum hver næsti kafli verður," segir Pew sem óskar Vestra alls hins besta.
Pew spilaði 21 leik fyrir Vestra í 2. deildinni í sumar en liðið endaði í þriðja sæti og tókst því ekki að komast upp í Inkasso-deildina. Hann var spilandi aðstoðarþjálfari liðsins en aðalþjálfari er Bjarni Jóhannsson.

„Eins og allir vita að þá náðu Andy og Elmar vel saman síðasta sumar og með þá í hjarta varnarinnar náðum við að halda hreinu í 13 leikjum í deildinni og vorum þeir félagar báðir í liði ársins hjá Fótbolta.net, við erum því að missa gríðarlega öflugan leikmann, sem og leiðtoga, en Andy hefur verið öflugur í klefanum og rifið menn áfram þegar á þurfti," segir heimasíða Vestra.
„Vestri hefur alltaf litið á sig sem fjölskylduklúbb og við munum aldrei standa í vegi fyrir því að okkar leikmenn séu ánægðir, hvort sem það er í leik eða starfi. Því höfum við samþykkt beiðni Andy um að fá að flytjast suður og finna sér félag nær syni sínum, þó vissulega sé það gert með trega yfir því að missa góðan vin og leikmann. Hinsvegar er margt í þessu lífi mikilvægara en fótbolti og því vill Vestri óska Andy góðs gengis í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur."
Pew spilaði fyrst á Íslandi 2006 en hann á sjö tímabil að baki með Selfossi, auk þess hefur hann leikið fyrir Hamar og Árborg.