Geir Þorsteins býður sig fram til formanns KSÍ (Staðfest)
Geir Þorsteinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í formannskjöri KSÍ á næsta ársþingi KSÍ sem haldið verður þann 9. febrúar næstkomandi.
Þetta staðfesti Geir í útvarpsþætti Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Þetta staðfesti Geir í útvarpsþætti Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Sögusagnir af endurkomu Geirs hafa flogið hátt undanfarnar vikur og mánuði en nú er þetta endanlega orðið staðfest.
„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér aftur í embætti formanns KSÍ. Aðalástæðan fyrir því er að ástríðan og áhuginn er svo sannarlega ennþá til staðar," sagði Geir við Elvar Geir og Benedikt Bóas í útvarpsþættinum.
„Knattspyrnuhreyfingin er stór hluti af mínu lífi og ég tel að við getum gert mun betur en við erum að gera núna. Ég hef nýja sýn á þetta."
Geir ákvað að gefa ekki kost á sér árið 2017 eftir tíu ára starf sem formaður KSÍ. Geir tók við keflinu af Eggerti Magnússyni árið 2007 en áður hafði Geir verið framkvæmdarstjóri KSÍ.
Guðni Bergsson var kjörinn formaður á ársþinginu árið 2017 en þar hafði hann betur gegn Birni Einarssyni. Guðni hefur því setið sem formaður sambandsins í tæp tvö ár.
Ársþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica þann 9. febrúar en þetta er 73. ársþing KSÍ.



