Guðni vissi hvað Geir var að gera - Kom á óvart
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, mun allavega fá eitt mótframboð á næsta ársþingi KSÍ sem haldið verður þann 9. febrúar næstkomandi. Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, mun bjóða sig fram á móti honum.
Geir staðfesti þessar fregnir í útvarpsþætti Fótbolta.net í gær, laugardag.
„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér aftur í embætti formanns KSÍ. Aðalástæðan fyrir því er að ástríðan og áhuginn er svo sannarlega ennþá til staðar," sagði Geir við Elvar Geir og Benedikt Bóas í útvarpsþættinum.
Hörður Magnússon ræddi við Guðna Bergsson í íþróttafréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
„Bæði og má segja," sagði Guðni aðspurður að því hvort þessi tíðindi kæmu honum á óvart. „Ég vissi af því að Geir væri að velta þessu fyrir sér og væri í sambandi við fólk í hreyfingunni um það mögulega að fara fram. Hvað það varðar kom þetta ekki á óvart."
„En ég hélt miðað við stöðuna, að ég væri búinn að vera í tvö ár í starfi og hvað við höfum verið að gera í hreyfingunni með frábæru starfsfólki og frábærri stjórn - og líka þeirri staðreynd að Geir steig til hliðar eftir 25 ára starf og er heiðursformaður, þá kom þetta mér á óvart."
Guðni vonast eftir málefnalegri umræðu um formannsstöðuna, en ársþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica þann 9. febrúar.
Viðtalið við Guðna má sjá í heild sinni hérna



