5. umferðin í Inkasso-deild karla hefst í dag þegar tvö neðstu liðin mætast Magni og Haukar á Grenivík.
Umferðin heldur síðan áfram á föstudag og laugardag og lýkur á sunnudaginn með einum leik.
Sigurður Egill Lárusson leikmaður Vals spáði þremur leikjum rétt í síðustu umferð. Nú er komið að Sindra Snæ Magnússyi fyrirliða ÍBV.
Umferðin heldur síðan áfram á föstudag og laugardag og lýkur á sunnudaginn með einum leik.
Sigurður Egill Lárusson leikmaður Vals spáði þremur leikjum rétt í síðustu umferð. Nú er komið að Sindra Snæ Magnússyi fyrirliða ÍBV.
Magni 1 - 2 Haukar (16:00 í dag)
Haukarnir verða frábærir á þessum Uppstigningardegi, þar sem Búi tryggir sér starfið út maí. Magnaðir Magnamenn komast þó yfir í bráðfjörugum leik.
Leiknir R 1 - 2 Víkingur Ó (19:00 á föstudag)
Leiknismenn tóku góðan sigur í síðasta leik, en Ólsarar eru á siglingu og þeir munu sigla heim sigri með einu marki. Bjarki Aðalsteinsson skorar fyrir Leikni en mörk Ólsara koma frá Jacobi Andersen.
Keflavík 4 - 2 Grótta (19:15 á föstudag)
Tvö ung lið þar sem Keflavík mun sigra að lokum 4-2. Þar sem Davíð Snær mun gera gæfumuninn. Hvet alla til að kíkja í SunnyKef.
Fram 2 - 0 Afturelding (19:15 á föstudag)
Strákarnir í Safamýrinni sigla þessu heim.
Fjölnir 2 - 0 Njarðvík (14:00 á laugardag)
Njarðvíkingar þreyttir eftir bikarslaginn á þriðjudaginn og án Toni þá munu strákarnir hans Begga Ólafs sigla þessu heim. Strömarinn kemst aftur á blað eftir smá meiðsli í síðustu viku.
Þór 2 - 1 Þróttur (16:00 á sunnudag)
Ef Þórsarar ætla sér að vera í baráttunni þurfa þeir sigur.
Þróttarar munu jafna metin 1-1 eftir fallega stungusendingu frá Degi Austmann sem Ágúst Leó klárar.
Alvaro Montejo mun hinsvegar skora sigurmarkið þar sem Þróttarar gefa eftir í lok leiks eftir erfiðan bikarleik á fimmtudaginn. Fylgist vel með hvernig hann mun fagna.
Sjá fyrri spámenn:
Sigurður Egill Lárusson (3 réttir)
Björgvin Stefánsson (3 réttir)
Aron Bjarnason (2 réttir)
Arnar Sveinn Geirsson (1 réttur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir